Snæfríður Sól Jórunnardóttir var rúmri sekúndu frá því að komast í undanúrslit í 100 metra skriðsundi á Evrópumótinu í 25 metra laug í Glasgow í dag.
Hún hafnaði í fimmta sæti í fjórða riðli á 55,25 sekúndum og varð í 34. sæti. Nina Kost frá Sviss varð síðust inn í undanúrslitin á 54,15 sekúndum.
Jóhanna Elín Guðmundsdóttir varð fjórða í öðrum riðli á 56,03 sekúndum og í 47. sæti. Jóhanna keppti í 50 metra flugsundi fyrr í dag og hafnaði í 27. sæti.
Jóhanna keppir í 50 metra skriðsundi á sunnudag, sem verður hennar síðasta einstaklingsgrein. Snæfríður keppir í 200 metra skriðsundi á laugardag og 50 metra skriðsundi á sunnudag.
Kristinn Þórarinsson hafnaði í 50. sæti af 62 keppendum í 100 metra baksundi. Hann synti á 53,99 sekúndum. Hann keppir í 100 m fjórsundi á laugardag og 50 m baksundi á sunnudag.