Gylfi byrjar með bandið

Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliði Everton sem mætir Watford á Vicarage Road kl. 15:00 í dag í ensku úrvalsdeildinni.

Gylfi Þór hefur verið að glíma við nárameiðsli og hefur misst af tveimur síðustu leikjum Everton í ensku úrvalsdeildinni. Hann er aftur á móti klár í slaginn í dag og ber fyrirliðabandið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert