Látum fjandans veiruna ganga almennilega yfir

Valskonur eru ríkjandi Íslandsmeistarar í körfubolta kvenna.
Valskonur eru ríkjandi Íslandsmeistarar í körfubolta kvenna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ef ég mætti ráða öllu í einn dag....

Þá myndi ég gefa frí í íslensku vetrardeildunum og mótunum sem ólokið er á yfirstandandi tímabili, allt til 1. ágúst.

Þar á ég við handboltann, körfuboltann, íshokkíið, blakið og svo aðrar íþróttagreinar sem ekki hafa lokið sínum mótum tímabilið 2019-20.

Hinn 1. ágúst ætti kórónuveiran að hafa gengið sitt skeið hér á Íslandi, vonandi fyrir þó nokkru, og flest að vera komið aftur í eðlilegt horf.

Í ágúst og fram í september yrði leikið það sem eftir væri af deildakeppnum, úrslitakeppnum, bikarúrslitaleikjum og öðrum mótum sem tilheyra 2019-20.

Bakvörðinn má sjá í heild sinni á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert