Steinunn Björnsdóttir handknattleikskona úr Fram og Guðmundur Ágúst Kristjánsson kylfingur úr GR voru í gær útnefnd íþróttakona og íþróttamaður Reykjavíkur fyrir árið 2020.
Í tilkynningu frá ÍBR segir um Steinunni:
Steinunn Björnsdóttir er fyrirliði bikarmeistara og deildarameistara Fram í handknattleik 2020. Steinunn hefur verið besti leikmaður Íslandsmótsins í handbolta, eftir síðasta tímabil var hún valin besti varnar og línumaðurinn sem og valin mikilvægasti leikmaðurinn. Steinunn er fyrirmyndarleikmaður og mikill leiðtogi inn á vellinum, Steinunn leggur áherslu á að miðla reynslu sinni til yngri iðkenda og heldur fyrirlestra í félögum á höfuðborgarsvæðinu. Við óskum Steinunni Björnsdóttur til hamingju með titilinn Íþróttakona Reykjavíkur 2020.
Í tilkynningunni segir um Guðmund:
Guðmundur Ágúst Kristjánsson er í Golfklúbbi Reykjavíkur. Á árinu 2020 var Guðmundur Ágúst með keppnisrétt á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, Challenge Tour en aðeins fimm íslenskir kylfingar hafa öðlast keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni. Guðmundur Ágúst endaði í 46. Sæti á stigalistanum sem er næst besti árangur hjá íslenskum atvinnukylfingi á Áskorendamótaröðinni (Challenge Tour). Besti árangur hans var á Norður-Írlandi þar sem Guðmundur Ágúst endaði í 5. sæti. Guðmundur Ágúst hefur farið hratt upp heimslistann á undanförnum misserum. Við óskum Guðmundi Ágústi Kristjánssyni til hamingju með titilinn Íþróttamaður Reykjavíkur 2020.
Íþróttamenn sem voru tilnefndir sem Íþróttafólk Reykjavíkur 2020 og fá fjárstyrk frá ÍBR eru:
Konur:
Ásdís Hjálmsdóttir Annerud, spjótkastari - Ármann
Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir, frjálsíþróttakona - ÍR
Elín Metta Jensen, knattspyrnukona - Valur
Kristrún Guðnadóttir, gönguskíðakona - Ullur
Karlar:
Birkir Már Sævarsson, knattspyrna - Valur
Guðni Valur Guðnason, Krinlukast - ÍR
Júlían Jóhann Karl Jóhannsson, kraftlyftingar - Ármann
Snorri Einarsson, skíðaganga - Ullur
Íþróttalið Reykjavíkur 2020 eru Íþróttafélögin í Reykjavík. Árið 2020 hefur einkennst af því að félögin hafa þurft að hugsa út fyrir rammann til að halda íþróttafólkinu við efnið í miðjum heimsfaraldri. Þjálfarar og stjórnir íþróttafélaganna hafa unnið þrekvirki með því að aðlaga starfið og nýta tæknina eins og kostur var á.
Íþróttalið sem ná framúrskarandi árangri á árinu fá fjárstyrk frá ÍBR. Þau lið sem eru Íslandsmeistarar, Bikarmeistarar og Deildarmeistarar hljóta styrkinn. Liðin sem hljóta styrk að þessu sinni eru:
Handknattleiksdeild Fram
Keiludeild ÍR
Keilufélag Reykjavíkur
Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur
Handknattleiksdeild Vals
Knattspyrnudeild Vals
Körfuknattleiksdeild Vals
Borðtennisdeild Víkings
Karatefélag Þórshamars