Óstöðvandi Hamarsmenn lögðu Vestfirðinga

Hamarsmenn fagna sigrinum á Vestra.
Hamarsmenn fagna sigrinum á Vestra. Ljósmynd/Guðmundur Erlingsson

Hamar hélt áfram sigurgöngu sinni í úrvalsdeild karla í blaki, Mizuno-deildinni, með því að sigra Vestra frá Ísafirði 3:0 í Hveragerði í dag.

Hamarsmenn mættu einbeittir til leiks og unnu fyrstu tvær hrinurnar örugglega, 25:15 og 25:14. Vestramenn vöknuðu þá til lífsins og veittu hörkumótspyrnu en það dugði skammt. Vestri hafði frumkvæði í hrinunni og var yfir í stöðunni 23:20 en Hamarsmenn héldu einbeitingu og unnu hrinuna að lokum 26:24 og enn einn leikinn þar með 3:0.

Hamarsmenn eru því enn sem fyrr ósigraðir á toppi deildarinnar með fullt hús stiga.

Hafsteinn Valdimarsson og Jakub Madeij úr Hamri upp við netið …
Hafsteinn Valdimarsson og Jakub Madeij úr Hamri upp við netið í leiknum við Vestra. Ljósmynd/Guðmundur Erlingsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert