Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, segir það vera forgangsmál hjá stjórnvöldum að koma íþrótta- og æskulýðsstarfi aftur af stað.
Allt íþróttastarf liggur niðri til 15. apríl hið minnsta vegna hertra reglna um sóttvarnaráðstafanir hér á landi. Lilja segir markmið yfirvalda að leyfa íþróttastarfi að hefjast aftur sem fyrst.
„Það er forgangsmál hjá stjórnvöldum að koma íþrótta- og æskulýðstarfi af stað enda er um mikilvægt lýðheilsumál að ræða. Það er brýn þörf á að virkja iðkendur og tryggja samfellu í æfingum íþróttafólks,“ segir ráðherrann á Facebook-síðu sinni í dag.
„Nú er markmiðið að íþróttastarf geti hafist samhliða sóttvarnaráðstöfunum. Fram hefur komið að mikil þörf er á að fyrirsjáanleiki aukist um hvernig skipulagi verði háttað. Mikilvægt er að samræmi sé í takmörkunum í skólastarfi og íþrótta- og æskulýðsstarfi ásamt því að tryggja að skipulag íþróttastarfs sé sambærilegt í alþjóðlegu samhengi, eins og frekast er unnt.