Erna Sóley Gunnarsdóttir úr ÍR setti í gær nýtt Íslandsmet í kúluvarpi kvenna utanhúss þegar hún kastaði 16,72 metra og sigraði á háskólamóti í Texas.
Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir átti metið áður en hún kastaði 16,53 metra í Svíþjóð árið 2019. Frjálsíþróttasamband Íslands segir frá nýju meti Ernu á samfélagsmiðlum sínum en einnig er um að ræða aldursflokkamet í 20 til 22 ára flokki.
Nú á Erna metin bæði innan- og utanhúss en hún stórbætti eigið met innanhúss á móti í Birmingham í Alabama í febrúar. Hún keppir fyrir Rice-háskólann í Houston í Texas.
Erna vann yfirburðasigur á mótinu en Maia Campbell frá UTSA sem varð í öðru sæti kastaði 15,77 metra og Nu'uausala Tuilefano frá Houston-háskóla kastaði 15,07 metra.