Steingerður átti besta afrekið

Freyja Birkisdóttir á mótinu í dag.
Freyja Birkisdóttir á mótinu í dag. Ljósmynd/SSÍ

Steingerður Hauksdóttir úr Sundfélagi Hafnafjarðar átti besta afrekið  á Íslandsmeistaramótinu í sundi í 50m laug sem lauk í Laugardalslauginni í dag. 

Steingerður synti 50 metra baksund á tímanum 29,60 sekúndum og fékk fyrir það 757 stig samkvæmt stigatöflu alþjóða sundsambandsins. Fyrir besta afrekið fær Steingerður Ásgeirsbikarinn. 

Daði Björnsson setti piltamet í 100m bringusundi í morgun. Tíminn er millitími úr 200m bringusundi og var millitíminn 1:04,52. Gamla metið var í eigu Jakobs Jóhanns Sveinssonar frá árinu 1999, 1:05,08.

Freyja Birkisdóttir úr Breiðabliki setti stúlknamet í 1500m skriðsundi en hún sigraði greinina á tímanum 17:32,11. Stúlknametið var 17:34,44. Hún stefnir hraðbyri í átt að Íslandsmetinu í greininni en það er 17:17,61. Tíminn hennar í dag var einnig undir EMU lágmarkinu, sem er 17:49,17.

Fannar Snævar Hauksson úr ÍRB setti piltamet í 50m flugsundi en hann varð annar á tímanum 25,60 sek. Gamla metið var 25,89 í eigu Hjartar Más Reynissonar frá árinu 2000.

Piltasveit SH setti piltamet í 4x100m fjórsundi í síðasta riðli mótsins þegar þeir syntu á tímanum 4:05,77. Gamla metið var 4:16,12 í eigu ÍRB frá árinu 2012. Sveit SH skipuðu þeir Veigar Hrafn Sigþórsson, Snorri Dagur Einarsson, Birnir Freyr Bjarnason, Bergur Fáfnir Hálfdánarson. 

Kristín Helga Hákonardóttir úr Breiðabliki synti undir EMU lágmarki í 100m skriðsundi en hún fór á 58,50. Lágmarkið er 58,61.

Eva Margrét Falsdóttir úr ÍRB synti einnig undir EMU lágmarki en það var í 200m fjórsundi með tímann 2:22,44. Lágmarkið er 2:23,68.

Veigar Hrafn Sigþórsson úr SH synti undir NÆM lágmarki í morgun og nú seinni partinn í 400m fjórsundi. Birnir Freyr Hálfdánarson úr SH og Guðmundur Karl Karlsson úr Breiðabliki náðu einnig undir NÆM lágmarkinu í 200m skriðsundi. 






Steingerður Hauksdóttir, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Dagbjört Hlíf Ólafsdóttir.
Steingerður Hauksdóttir, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir og Dagbjört Hlíf Ólafsdóttir. mbl.is/Sigurður Ragnarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert