Bætti eigið Íslandsmet

Erna Sóley Gunnarsdóttir bætti eigið Íslandsmet um fimm sentimetra.
Erna Sóley Gunnarsdóttir bætti eigið Íslandsmet um fimm sentimetra. Ljósmynd/Stefán Þór Stefánsson

Kúluvarparinn Erna Sóley Gunnarsdóttir bætti eigið Íslandsmet í kúluvarpi á svæðismeistaramóti í Murfreesboro í Tennesse í Bandaríkjunum í dag.

Erna kastaði kúlunni 16,77 metra og bætti eigið Íslandsmet um fimm sentimetra en kastið skilaði henni öðru sæti á mótinu.

Maia Campbell frá háskólanum í Texas vann mótið með kast upp á 17,33 metra.

Erna á bæði Íslandsmetið innan- og utanhúss en hún kastaði lengst 16,95 metra innanhúss í vetur.

Erna keppir fyrir Rice University þar sem hún er að klára annað árið sitt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert