Íþrótta- og ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) krefst þess að íþróttafólk sem tekur þátt í alþjóðlegum verkefnum fyrir Íslands hönd njóti sömu þjónustu frá yfirvöldum þegar kemur að bólusetningu við kórónuveirunni og keppendur á öðrum vettvangi.
Fram kemur í tilkynningu frá ÍSÍ að það hafi vakið undrun þegar fregnir bárust af því að íslenski Eurovision-hópurinn hafi fengið undanþágu fyrir bólusetningu.
ÍSÍ segir að hingað til hafi stjórnvöld hafnað öllum óskum um að afreksíþróttafólk fái forgang í bólusetningu, að loknum bólusetningum viðkvæmra hópa og heilbrigðisstarfsfólks, svo það geti með öruggari hætti tekið þátt í alþjóðlegu mótahaldi.
„Því hefur afreksíþróttafólk landsins þurft að fara óbólusett í stór og krefjandi verkefni og í undankeppnir fyrir stórmót á efsta stigi viðkomandi íþróttar. Það hefur tekið áhættu á því að smitast af kórónuveirunni til að freista þess að viðhalda árangri landsins í íþróttum, árangri sem tekið hefur mörg ár að byggja upp,“ segir í tilkynningunni.
„Að auki hefur íþróttafólkið og fylgdarlið þurft að dvelja langdvölum í sóttkví sem oftar en ekki raskar æfingaáætlunum og mögulega þátttöku í mótum auk kostnaðar sem af því hefur hlotist.“
Fram kemur að Alþjóðaólympíunefndin (IOC) hafi útvegað bóluefni fyrir alla þátttakendur í Ólympíuleikum og Ólympíumóti fatlaðra (Paralympics) og mun ÍSÍ fá bóluefni fyrir þann hóp sem fer á leikana.
„Sú ráðstöfun kemur til með aðkomu IOC en ekki íslenskra yfirvalda og nær einungis til þessa þrönga hóps. Vonast er til að þessi bólusetning hefjist í næstu viku í góðu samstarfi við sóttvarnasvið embættis landlæknis,“ segir í tilkynningunni.