Snæfríður Sól Jórunnardóttir náði í morgun besta sæti Íslendings á Evrópumótinu í sundi í 50 metra laug í Búdapest til þessa.
Hún keppti í 200 metra skriðsundi kvenna og kom í mark á 2:01,31 mínútu, sem er 80/100 frá hennar besta. Hún endaði í 28. sæti í greininni. Snæfríður var heldur hæg á fyrri 100 metrunum en hélt sínu í seinni hundrað. Þetta var gott sund hjá Snæfríði Sól en vantaði örlítið upp á hraðann. Fyrir á hún sjálf Íslandsmetið, 2:00,50 mínútur, en metið setti hún á danska meistaramótinu sem haldið var í Vejle í mars á þessu ári.
Kristinn Þórarinsson keppti í 100 metra baksundi í morgun. Hann kom í mark töluvert frá sínu besta, á 58,24 sekúndum, og lenti í 56. sæti í greininni.
Þetta er samt tæplega sekúndu betri tími en á ÍM50 2021, þegar hann synti á 59,19, en Kristinn á fyrir besta tímann sinn 56,53 frá því á ÍM50 2019.
Íslandsmetið í greininni er 20 ára gamalt, 54,75 sekúndur. Það á Örn Arnarson en það setti hann á HM50 í Fukuoka 2001 þar sem hann vann silfur í greininni.