Þórður og Freyja vörðu titlana

Þórður Jökull Henrýson úr Aftureldingu og Freyja Stígsdóttir úr Þórshamri …
Þórður Jökull Henrýson úr Aftureldingu og Freyja Stígsdóttir úr Þórshamri vörðu Íslandsmeistaratitla sína. mbl.is/Sigurður Unnar

Íslandsmeistaramótið í kata fór fram í gær í íþróttahúsi Menntavísindasviðs HÍ, Háteigsvegi.

Átján keppendur frá sjö félögum tóku þátt, auk fimm liða. Þórður Jökull Henrýsson úr Aftureldingu og Freyja Stígsdóttir úr Þórshamri vörðu Íslandsmeistaratitla sína í einstaklingskeppni.

Breiðablik varði titil sinn í liðakeppni karla og Þórshamar vann í kvennaflokki. Karatefélag Reykjavíkur var sigurvegari í stigakeppni félagsliða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert