Íslensku keppendurnir komust ekki áfram á heimsmeistaramótinu í áhaldafimleikum sem fram fer í Kitakyushu í Japan.
Keppni í undankeppninni í fjölþraut er lokið en þar kemur í ljós hverjir komast í úrslit á einstökum áhöldum.
Valgarð Reinhardsson náði bestum árangri Íslendinganna í fjölþrautinni og hafnaði í 36. sæti en Jónas Ingi Þórisson varð í 48. sæti. Guðrún Harðardóttir hafnaði í 49. sæti í fjölþrautinni og Margrét Kristinsdóttir í 53. sæti.
Jón Sigurður Gunnarsson náði bestum árangri á einstökum áhöldum þegar hann hafnaði í 23. sæti á hringjum í undankeppninni en átta efstu munu keppa í úrslitum á einstökum áhöldum. Jón Sigurður fékk hæstu „erfiðleikaeinkunn“ sem íslenskur fimleikamaður hefur fengið segir í frétt Fimleikasambandsins.
Nanna Guðmundsdóttir náði bestum árangri íslensku kvennanna á einstökum áhöldum þegar hún hafnaði í 39. sæti í gólfæfingum.