Fann styrk í íþróttinni eftir misnotkun afa síns

„Ég kærði afa minn fyrir kynferðislega misnotkun árið 2000,“ sagði Aníta Hauksdóttir, margfaldur Íslandsmeistari í mótorsporti, í Dagmálum, frétta- og menningarlífsþætti Morgunblaðsins.

Ári síðar fékk Aníta sitt fyrsta mótorkrosshjól í afmælisgjöf frá foreldrum sínum þegar hún var ellefu ára. Hún hefur þrívegis verið útnefnd akstursíþróttakona ársins en hún hefur margoft keppt fyrir Íslands hönd á erlendri grundu.

Aníta hefur gengið í gegnum ýmislegt um ævina og lent í erfiðum áföllum en mótorsportið hefur alltaf verið ákveðin kjölfesta í hennar lífi.

„Þetta var gríðarlega mikið áfall og mér fannst stór partur af minni fjölskyldu tekinn frá mér því mér fannst óþægilegt að vera í kringum stórfjölskylduna mína á þessum tíma,“ sagði Aníta.

„Við tölum oft um fólkið í kringum mótorsportið sem hálfgerða fjölskyldu og þetta varð mitt samfélag ef svo má segja.

Ég er gríðarlega þakklát fyrir bæði sportið og samfélagið í kringum það því ég hef fengið bæði útrás og annars konar styrk þar til þess að takast á við mín áföll,“ sagði Aníta.

Viðtalið við Anítu í heild sinni má nálgast með því að smella hér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert