Gunnar Þór í fimmta sæti á EM

Gunnar Þór Ásgeirsson.
Gunnar Þór Ásgeirsson. Ljósmynd/KLÍ

Keilukappinn Gunnar Þór Ásgeirsson úr ÍR hafnaði í fimmta sæti á Evrópumóti landsmeistara í dag en keppt var í borginni Chania á Krít í Grikklandi. Er þetta aðeins í þriðja sinn sem íslenskur keilari kemst í átta manna úrslit á þessu móti.

Hann var aðeins 27 pinnum frá fjórða sætinu sem hefði til að tryggja sér rétt til að keppa í undanúrslitum mótsins. Gunnar Þór var með 226,2 í meðaltal á mótinu eftir 28 leiki sem hann lék og vann hann sig upp sætalistann frá því hann komst í 16 manna úrslit, en hann var í 9. sætinu eftir forkeppnina.

Komst hann upp í 7. sætið í 16 manna úrslitum og tryggði sér þar með rétt til að keppa í 8 manna úrslitum og endaði sem segir í 5. sæti mótsins.

Það varð Mike Bergmann frá Hollandi sem sigraði mótið í karlaflokki en hann lagði Svíann Mattias Wetterberg í úrslitum 2:1. Wetterberg er Íslendingum að góðu kunnur en hann hefur keppt hér á landi á Reykjavíkurleikunum.

Það er skammt stórra högga á milli hjá Gunnari Þór en hann mun rétt stoppa í einn dag hér heima áður en hann heldur til Dubai með íslenska karlalandsliðinu til keppni á Super World Cup.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert