Kolbrún Þöll Þórðardóttir og Helgi Laxdal Aðalgeirsson hafa verið útnefnd fimleikakona og fimleikakarl ársins 2021 af Fimleikasambandi Íslands.
Um Kolbrúnu er sagt á vef sambandsins:
Kolbrún Þöll var máttarstólpi í kvennalandsliði Íslands á Evrópumóti í hópfimleikum nú í desember þegar liðið tryggði sér Evrópumeistaratitilinn. Kolbrún keppti í öllum umferðum í undanúrslitum og í úrslitunum og skilaði öllum sínum stökkum og gólfæfingum með glæsibrag.
Stökkin hennar voru á meðal þeirra erfiðustu sem framkvæmd voru á mótinu og ber þar helst að nefna tvöfalt strekkt heljarstökk með þremur og hálfri skrúfu, sem hún framkvæmdi á trampólíni bæði í undanúrslitum og úrslitum við mikinn fögnuð fimleikaheimsins.
Kolbrún Þöll er fyrsta konan til þess að keppa með það stökk á Alþjóðlegu móti, hún keppti einnig með þetta stökk 2016, þá í unglingaflokki, en á þeim 5 árum hefur engin önnur kona keppt með stökkið, sem er til marks um hversu erfitt það er.
Kolbrún Þöll var ein af sex fimleikakonum á EM sem var valin í úrvalslið Evrópumótsins „All stars“ liðið, en hún hefur verið valin í það lið á síðustu 4 Evrópumótum, 2014, 2016, 2018 og núna 2021. Kolbrún var að keppa á sínu 5. Evrópumóti en hún var í sigurliði Íslands árið 2012, þegar stúlknaliðið varð Evrópumeistari og er þetta því hennar annar Evrópumeistaratitill.
Kolbrún er fimleikakona á heimsmælikvarða sem eftir er tekið á öllum mótum, hvort sem er á Íslandi eða erlendis, vegna stórkostlegra hæfileika og góðrar framkvæmdar í stökkum, sem og í gólfæfingum. Kolbrún varð á árinu Íslands – og bikarmeistari með félagsliði sínu, Stjörnunni, og spilar þar ekki síður stórt hlutverk en í landsliðinu.
Um Helga er sagt á vef sambandsins:
Helgi var í karlalandsliði Íslands á nýafstöðnu Evrópumóti í hópfimleikum þegar liðið tryggði sér 2. sæti en það er í fyrsta sinn sem karlaliðið kemst á pall.
Hann keppti fyrstur í heiminum með framseríuna skrúfa-kraftstökk-tvöfalt strekkt heljarstökk með tveimur hálfri skrúfu á dýnu og braut þar blað í fimleikasögunni.
Hann var valinn í úrvalslið mótsins, einn af sex fimleikamönnum á öllu mótinu sem fengu þann heiður, en Helgi var valinn fyrir stökkin sem hann framkvæmdi á dýnu.
Helgi keppti einnig með yfirslag með tvöföldu heljarstökki og hálfri skrúfu og þrefalt heljarstökk með tveimur og hálfri skrúfu á trampólíni og er þar á pari við allra bestu fimleikamenn heims í erfiðleika.
Helgi keppti ásamt liðinu sínu á bikar og Íslandsmóti í vor og hampaði þar Íslands og bikarmeistaratitlum. Hann hefur löngum vakið athygli fyrir mikla útgeislun á dansgólfinu þar sem hann nýtur sín vel og skilar dansinum virkilega vel frá sér, Helgi er einnig framúrskarandi góður stökkvari og keppir iðullega í öllum umferðum þegar að liðið hans keppir.