Ráðinn landsliðsþjálfari Íslands

Jesper Sand Poulsen, til vinstri, er orðinn landsliðsþjálfari Íslands.
Jesper Sand Poulsen, til vinstri, er orðinn landsliðsþjálfari Íslands. Ljósmynd/Pílusamband Íslands

ÍPS hefur ráðið Jesper Sand Poulsen sem landsliðsþjálfara karla og kvenna í pílukasti. Landsliðsþjálfari gegnir veigamiklu hlutverki í afreksstarfi sambandsins en hann mun koma til með að velja úrtakshópa sem og lokahópa sem keppa fyrir Íslands hönd. Næsta landsliðsverkefni er Norðurlandamótið (Nordic Cup) sem haldið verður dagana 26.-29. maí 2022 í Svíþjóð.

Sambandið hafði áður gefið út að stigalisti sambandsins yrði notaður við val á landsliðum Íslands fyrir Norðurlandamótið en það fyrirkomulag mun breytast í kjölfarið. Úrtakshópur karla og kvenna verður valinn og kynntur á fyrri hluta næsta árs og munu landslið Íslands í karla og kvennaflokki verða kynnt í lok mars.

Þar sem ekki er búið að gefa út staðfestar dagsetningar fyrir EM og HM er ekki hægt að gefa dagsetningar á hvenær landslið Íslands verða valin fyrir þau verkefni en stefnt er á því að nýir úrtakshópar verði valdir um leið og landsliðsverkefni lýkur og landsliðin valin að minnsta kosti tveimur mánuðum fyrir mót.

,,Ég hlakka til að vera hluti að liði sem mun móta íþróttina í framtíðinni og auka áhuga á henni. Ég hef enga ástæðu til að áætla annað en að íþróttin geti vaxið svipað og hún hefur verið að gera undanfarin tvö ár. Ég hef tekið eftir mikið af nýjum spilurum sem hafa metnað og burði til þess að ná langt í íþróttinni og ég hlakkar til að fylgjast með á komandi misserum,“ er haft eftir Jesper í tilkynningu Pílusambands Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert