Ragnar Ingi Axelsson leikmaður Hamars í Hveragerði og Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir, leikmaður sænsku meistaranna Hylte/Halmstad, voru í dag heiðruð af Blaksambandi Íslands sem blakfólk ársins 2021.
Í umsögnum Blaksambands Íslands um þau Ragnar og Jónu, sem bæði eru frá Neskaupstað og léku þar með Þrótti framan af ferlinum, segir eftirfarandi:
Ragnar Ingi Axelsson
Ragnar Ingi er blakmaður ársins 2021 og ber nafnbótina í fyrsta skipti. Ragnar hóf sinn blakferil, líkt og margir aðrir, í Neskaupstað. Í fyrra gekk Ragnar til liðs við nýliða Hamars í úrvalsdeild karla og spilaði lykilhlutverk í liðinu, vann alla þrjá stóru titlana sem í boði voru á tímabilinu en Hamar varð deildar-, Íslands- og bikarmeistari í vor. Ragnar var valinn í lið ársins í uppgjöri úrvalsdeildar að keppnistímabilinu loknu.
Ragnar Ingi leikur í stöðu frelsingja og hefur verið einn besti varnarmaður úrvalsdeildarinnar á liðnum árum. Hann er með bestu tölfræðina í sinni stöðu það sem af er þessu tímabili og var á dögunum valinn í úrvalslið úrvalsdeildarinnar eftir fyrri hluta tímabilsins. Ragnar og lið hans Hamar, hafa ekki enn tapað leik á árinu 2021 og eru ósigraðir í 32 keppnisleikjum í röð.
Ragnar Ingi er leikmaður A landsliðsins og á að baki 15 leiki og hefur einnig leikið með öllum yngri landsliðum Íslands.
Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir í leik með Hylte/Halmstad.
Ljósmynd/HHVolley
Jóna Guðlaug Vigfúsdóttir
Jóna Guðlaug er blakkona ársins 2021, annað árið í röð. Jóna sem hóf feril sinn hjá Þrótti í Neskaupstað hefur verið útnefnd blakkona ársins sex sinnum en hún hlaut nafnbótina fyrst árið 2005. Hún hefur sl. ár leikið sem atvinnumaður í blaki og spilar með liði Hylte/Halmstad í Svíþjóð.
Jóna Guðlaug er fyrirliði Hylte/Halmstad og gegndi lykilhlutverki í liðinu sem varð þrefaldur meistari á vormánuðum, lyfti Jóna deildarmeistara- og bikarmeistaratitli ásamt því að verða Svíþjóðarmeistari í blaki. Í uppgjöri sænsku úrvalsdeildarinnar var Jóna valin í lið ársins.
Um árabil hefur Jóna Guðlaug verið fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í blaki og á að baki 84 landsleiki auk þess sem hún lék með öllum yngri landsliðum Íslands.
Á yfirstandandi keppnistímabili er lið Jónu Guðlaugar í toppsæti sænsku úrvalsdeildarinnar og hefur liðið ekki tapað leik það sem af er keppnistímabilinu.