Stjórn Karatesambands Íslands hefur valið systkinin Ronju Halldórsdóttur og Huga Halldórsson frá Karatefélagi Reykjavíkur karatefólk ársins 2021.
Karatekona ársins 2021: Ronja Halldórsdóttir, KFR
„Ronja er ung og efnileg karatekona sem hefur verið að keppa bæði innanlands og erlendis með góðum árangri. Hún keppir í báðum keppnisgreinum karate og var nálægt því að vinna til verðlauna í báðum greinum á Norðurlandameistaramótinu í ár,“ segir í tilkynningu frá Karatesambandi Íslands.
Árangur Ronju á árinu:
3. sæti NM í kumite junior kvenna – 59 kg
Bikarmeistari kvenna 2021
1. sæti á RIG 2021 kumite senior female -61 kg
1. sæti á RIG 2021 kumite junior female +53 kg
1. sæti ÍM kumite senior female -61 kg
2. sæti ÍMU í kata junior female
2. sæti ÍMU kumite female -59 kg
Karatemaður ársins 2021: Hugi Halldórsson, KFR
„Hugi er vaxandi karatemaður sem keppir í báðum greinum karate. Hann er að stíga sín fyrstu spor sem junior-keppandi (16-17 ár) og hefur náð frábærum árangri innanlands sem utan. Einnig hefur hann tekið þátt í fullorðinsmótum innanlands og verið sigursæll á árinu,“ segir í tilkynningunni.
Árangur Huga á árinu:
Norðurlandameistari í kumite Junior -76 kg
Bikarmeistari karla 2021
1. sæti á RIG 2021 kumite cadet male +63 kg
1. sæti á RIG 2021 kata male cadet
1. sæti ÍM kumite senior male -75 kg
1. sæti ÍMU kumite junior male +68 kg
2. sæti ÍMU í kata junior male
3. sæti ÍM kata senior male