Guðrún og Róbert íþróttafólk Hafnarfjarðar

Guðrún Brá Björgvinsdóttir er íþróttakona Hafnarfjarðar 2021.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir er íþróttakona Hafnarfjarðar 2021.

Kylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili og sundmaðurinn Róbert Ísak Jónsson úr Firði voru í dag útnefnd íþróttakona og íþróttakarl Hafnarfjarðar fyrir árið 2021.

Valið var kynnt með rafrænum hætti á miðlum Hafnarfjarðarbæjar og þar var meistaraflokkslið kvenna hjá Haukum í körfuknattleik jafnframt útnefnt afrekslið Hafnarfjarðar á árinu 2021.

Í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ segir eftirfarandi um kjörið:

300 hafnfirskir einstaklingar hafa unnið titla á árinu   

Árlega stendur Hafnarfjarðarbær fyrir afhendingu viðurkenninga til íþróttafólks sem keppir með hafnfirskum liðum, Íslandsmeistara, hópa bikarmeistara, Norðurlandameistara, heimsmeistara og sérstakra afreka, ásamt vali á íþróttakonu, íþróttakarli og íþróttaliði Hafnarfjarðar. Rafræn hátíð fór fram á miðlum Hafnarfjarðarbæjar í dag.

Á árinu 2021 hafa um 300 einstaklingar unnið Íslandsmeistaratitla og/eða bikarmeistaratitla með hafnfirsku liði og er þeim sérstaklega óskað til hamingju með árangurinn. Á hátíðinni var átta milljónum úthlutað úr sjóði sem Rio Tinto á Íslandi, ÍBH og Hafnarfjarðarbær standa að og ætlað er að efla íþróttastarf fyrir yngri en 18 ára.

Haukar fagna bikarsigrinum í haust.
Haukar fagna bikarsigrinum í haust. mbl.is/Arnþór Birkisson

Einstök frammistaða í íslenskri íþróttasögu hjá afreksliði Hafnarfjarðar

Meistaraflokkur kvenna í körfuknattleik hjá Haukum náði að verða í öðru sæti á Íslandsmótinu, varð bikarmeistari og meistari meistaranna í haust. Einnig vann liðið fyrsta Evrópuleik sem íslenskt kvennalið hefur unnið núna í haust þegar portúgalska liðið Union Sportiva var lagt í forkeppni EuroCup.

Haukar höfðu betur í samanlögðum úrslitum tveggja leikja þessa félaga og fóru í riðlakeppni Evrópukeppninnar. Með þessari frammistöðu eru Haukar að fara fyrir íslenskum kvennaliðum í körfuknattleik og er atburðurinn einstakur í íslenskri íþróttasögu.

Róbert Ísak Jónsson, íþróttamaður Hafnarfjarðar 2021.
Róbert Ísak Jónsson, íþróttamaður Hafnarfjarðar 2021.

Róbert Ísak Jónsson er íþróttakarl Hafnarfjarðar 2021

Róbert Ísak sundmaður Fjarðar er íþróttakarl Hafnarfjarðar og Íþróttasambands fatlaðra 2021. Hann er fjórfaldur Íslandsmeistari í 25 m laug í flokki S14 og þrefaldur Íslandsmeistari í 50 m laug. Einnig setti hann fjölda Íslandsmeta á árinu.

Hann vann silfurverðlaun í 100 m flugsundi og bronsverðlaun í 200 m fjórsundi á EM á Madeira. Á Paralympics 2020 í Tókýó, sem fór fram 2021, náði hann 6. sæti í 100 m flugsundi og 200 m fjórsundi.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir er íþróttakona Hafnarfjarðar 2021

Guðrún Brá er ein af fremstu kylfingum landsins og hefur verið það í mörg ár. Hún er kvenkylfingur Golfsambands Íslands og Keilis 2021. Á árinu varð hún Íslandsmeistari kvenna í holukeppni og sigraði á móti B59 á mótaröð þeirra bestu.

Guðrún Brá er atvinnukylfingur í golfi og leikur á Evrópumótaröð kvenna þar sem hún var með fullan þátttökurétt á árinu. Hún tók þátt í sextán mótum á árinu og vann sér inn þátttökurétt á lokamóti á Evrópumótaröðinni á Spáni í nóvember sl. Besti árangur hennar í ár var 12. sæti á Aramaco-mótinu á Englandi í júlí og 8. sæti á ATS í Sádi-Arabíu í nóvember. Guðrún Brá endaði í 75. sæti á styrkleikalista LET-Evrópumótaraðarinnar og er í sæti 649 á heimslista atvinnukvenna í golfi.

Guðrún Brá heldur fullum rétti á árinu 2022 á LET-mótaröðinni sem hefst í febrúar. Hún er fjórða íslenska konan sem náð hefur keppnisrétti á mótaröðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert