Lést eftir rothögg

Arrest Sahakyan var aðeins 26 ára gamall þegar hann lést.
Arrest Sahakyan var aðeins 26 ára gamall þegar hann lést. Ljósmynd/Instagram-síða Svetlönu Petrosyan

Armensk-rússneski boxarinn Arrest Sahakyan er látinn, aðeins 26 ára að aldri, eftir að hafa farið í dá í kjölfar rothöggs sem hann varð fyrir í bardaga gegn Rússanum Igor Semernin á öðrum degi jóla.

Semernin hafði betur gegn Sahakyan þegar hann rotaði þann síðarnefnda í bardaga sem fór fram í Togliatti í Rússlandi. Sahakyan var hraðað á spítala og gekkst þar undir aðgerð á heila vegna mikilla bólgna.

Eftir skurðaðgerðina lá hann í dái á spítalanum um tíu daga skeið en í miðri viku lést Sahakyan af sárum sínum.

Á bardagaferli sínum keppti Sahakyan níu sinnum og vann sex bardaganna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert