Skautakonan Aldís Kara Bergsdóttir úr SA og knattspyrnumaðurinn Brynjar Ingi Bjarnason úr KA hafa verið valin íþróttafólk Akureyrar árið 2021.
Þetta er þriðja árið í röð sem Aldís Kara er kjörin íþróttakona Akureyrar en Brynjar Ingi er valinn í fyrsta sinn.
Í tilkynningu frá ÍBA segir um íþróttafólk ársins:
„Aldís Kara, sem var valin skautakona ársins 2021 hjá Skautasambandi Íslands og íþróttakona Skautafélags Akureyrar, setti Íslandsmet í janúar 2021 þegar hún hlaut 123.44 stig á RIG21. Í haust keppti Aldís á tveimur ISU Challenger Series mótum. Með góðum árangri á þessum mótum vann Aldís Kara sér inn keppnisrétt á Evrópumeistaramóti í listskautum, fyrst íslenskra skautara.
Á Evrópumeistaramótinu, sem fór fram í Eistlandi í janúar 2022 hafnaði Aldís Kara í 34. sæti. Aldís Kara lauk árinu 2021 með því að slá eigið Íslandsmet á Íslandsmeistaramótinu sem haldið var í nóvember. Þar hlaut hún 136.14 stig sem er jafnframt hæstu stig sem gefin hafa verið í Senior flokki á Íslandi.
Brynjar Ingi er íþróttakarl Akureyrar í fyrsta skipti. Brynjar Ingi er uppalinn knattspyrnumaður úr KA og var valinn, annað árið í röð, íþróttakarl KA í byrjun árs. Brynjar Ingi spilaði 11 leiki fyrir KA sem hafnaði í 4. sæti í efstu deild karla 2021.
Frammistaða Brynjars Inga vakti mikla athygli og í júlí var Brynjar Ingi keyptur til Lecce í ítölsku B-deildinni. Með framgöngu sinni vann Brynjar Ingi sér inn fast sæti í A-landsliði karla á árinu, þar sem hann spilaði 10 A-landsleiki og skoraði tvö mörk. Í lok árs 2021 færði Brynjar Ingi sig um set, frá Ítalíu til norska úrvalsdeildarliðsins Vålerenga.“