Sturla úr einangrun í sóttkví

Sturla Snær Snorrason og Kristrún Guðnadóttir voru fánaberar Íslands í …
Sturla Snær Snorrason og Kristrún Guðnadóttir voru fánaberar Íslands í Peking. Ljósmynd/ÍSÍ

Sturla Snær Snorrason, keppandi á Vetrarólympíuleikunum í Peking, er laus úr einangrun og mættur aftur í Ólympíuþorpið í Yanqing.

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Íþrótta- og Ólympíusambandinu. Sturla Snær verður í sóttkví næstu daga en fær leyfi til að æfa. 

Laugardaginn 5. febrúar greindist Sturla Snær jákvæður á PCR-prófi í Ólympíuþorpinu og þar sem hann var með einkenni var hann fluttur á sjúkrahús í Peking.

„Mjög flóknar reglur eru í gildi í Kína varðandi einangrun og sóttkví og þurfa PCR-próf að vera yfir ákveðnum gildum til að losna úr einangrun og/eða sóttkví.

Sturla Snær er enn á batavegi en hefur nú losnað úr einangrun og er nú kominn í sóttkví sem hann verður í næstu daga, en í sóttkví má hann æfa og undirbúa sig undir keppni. Niðurstöður PCR-prófa eru ekki enn orðin neikvæð, en eru á réttri leið. Til að mega keppa á leikunum þarf að sýna fram á neikvætt próf, en áfram mun framvinda næstu daga skera úr um framhaldið,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka