Sturla hættur við keppni í nótt

Sturla Snær Snorrason keppir ekki í stórsvigi á morgun.
Sturla Snær Snorrason keppir ekki í stórsvigi á morgun. Ljósmynd/ÍSÍ

Sturla Snær Snorrason, keppandi á Vetrarólympíuleikunum í Peking, mun ekki keppa í stórsvigi næstu nótt. Sú ákvörðun var tekin í dag en keppni í stórsvigi er á dagskrá leikanna á morgun.

Sturla Snær greindist með kórónuveiruna fyrir viku síðan og var í framhaldinu fluttur úr ólympíuþorpinu og í einangrun á spítala. Hann losnaði úr einangrun í gær og kom aftur í ólympíuþorpið þar sem hann verður í sóttkví næstu daga.

Eftir æfingu í dag var tekin sú ákvörðun að Sturla Snær muni ekki keppa í stórsvigi að þessu sinni heldur einbeita sér að undirbúningi og keppni í svigi sem fram fer miðvikudaginn 16. febrúar næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert