Íslandsmet féllu á Norðurlandamótinu

Elísabet Rut Rúnarsdóttir.
Elísabet Rut Rúnarsdóttir. Ljósmynd/Frjálsíþróttasamband Íslands

Tvö Íslandsmet féllu á Norðurlandamótinu í frjálsíþróttum innanhúss í Uppsala í Svíþjóð í dag. 

Elísabet Rut Rúnarsdóttir bætti Íslandsmet Vigdísar Jónsdóttur í lóðkasti en hún kastaði 19,98 metra. Kastið skilaði henni í fimmta sæti en Silja Kosonen frá Finnlandi bar sigur úr býtum með kasti upp á 21,51 metra.

Hilmar Örn Jónsson bætti eigið Íslandsmet í lóðkasti með kasti upp á 21,96 metra. Hann lauk einnig keppni í fimmta sæti en Ragnar Carlsson frá Svíþjóð vann með kast upp á 23,12 metra.

Fleiri Íslendingar tóku þátt í dag en Eva María Baldursdóttir endaði í fjórða sæti í hástökki með stökk upp á 1,76 metra. Þá endaði Guðni Valur Guðnason einnig í fjórða sæti í kúluvarpi en hann varpaði kúlunni 17,66 metra. Hlynur Andrésson endaði í fimmta sæti í 3.000 metra hlaupi á tímanum 8:06,66 mín. og Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir endaði í sjöunda sæti í 200 metra hlaupi á tímanum 24,30 sek.

Öll úrslit mótsins má sjá hér.

Hilmar Örn Jónsson
Hilmar Örn Jónsson Ljósmynd/Frjálsíþróttasamband Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert