Víkingur tryggði sér í gær Íslandsmeistaratitil kvenna í borðtennis eftir 3:1-sigur á KR í TBR íþróttahúsinu.
Nevena Tasic, Stella Karen Kristjánsdóttir og Agnes Brynjarsdóttir skipuðu Víkingsliðið.
Víkingur hefur verið sigursælt í borðtennis á árinu en liðið vann tvöfaldan sigur á Reykjavíkurleikunum fyrr í þessum mánuði.