Þórunn og Sigurður fögnuðu sigri

Þórunn Margrét Gunnarsdóttir og Sigurður Örn Ragnarsson fögnuðu sigri.
Þórunn Margrét Gunnarsdóttir og Sigurður Örn Ragnarsson fögnuðu sigri. Ljósmynd/Aðsend

Sprettþraut Sundfélags Hafnarfjarðar fór fram um helgina við frábærar aðstæður. Mótið var jafnframt annað bikarmót sumarsins í þríþraut.

Í þrautinni voru syntir 750m í Ásvallalaug, hjólaðir 20km upp og niður Krýsuvíkurveg og að lokum hlaupnir 5km í Ásvallahverfi. Þetta var í 12. skiptið sem þessi þraut fer fram á sömu brautinni í Hafnarfirði.

Í kvennaflokki sigraði Þórunn Margrét Gunnarsdóttir úr Sundfélaginu Ægi á tímanum 73 mínútur og 27 sekúndur. Sædís Björk Jónsdóttir, einnig úr Ægi, varð í 2. sæti á tímanum 74 mínútur og 9 sekúndur og Valerie Maier úr Sundfélagi Hafnarfjarðar varð þriðja á tímanum 74 mínútur og 47 sekúndur.

Í karlaflokki sigraði Sigurður Örn Ragnarsson úr Breiðabliki en hann hafði nokkra yfirburði og kom í mark á tímanum 56 mínútur og 47 sekúndur. Stefán Karl Sævarsson, einnig úr Breiðablik, kom annar í mark á tímanum 59 mínútur og 32 sekúndur og þriðji var Geir Ómarsson úr Ægi á tímanum 63 mínútur og 45 sekúndur. Sundfélagið Ægir hafði nokkra yfirburði í stigakeppni félaga en næst á eftir þeim komu Breiðablik og Sundfélag Hafnarfjarðar.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert