Egill og Irka meistarar í fyrsta skipti

Egill Sigurðsson varð Reykjavíkurmeistari karla.
Egill Sigurðsson varð Reykjavíkurmeistari karla. Ljósmynd/tennis.is

Egill Sigurðsson úr Víkingi og Irka Caicedo Jaroszynska úr Fjölni urðu Reykjavíkurmeistarar í fyrsta skipti þegar leikið var til úrslita á Víkingsvöllunum á dögunum.

Egill hefur æft og keppt erlendis undanfarin ár og er í 1.592. sæti á heimslista Alþjóða tennissambandsins. Hann vann Raj K. Bonifacius úr Víkingi 6:2 og 6:2 í úrslitaleiknum. Ólafur Helgi Jónsson úr Fjölni varð í þriðja sæti.

Irka Caicedo Jaroszynska varð Reykjavíkurmeistari kvenna.
Irka Caicedo Jaroszynska varð Reykjavíkurmeistari kvenna. Ljósmynd/tennis.is

Irka keppti á sínu fyrsta Reykjavíkurmóti og hún vann Garima Nitinkumar Kalugade úr Víkingi i úrslitaleiknum, 6:3 og 6:4. Inga Eiríksdóttir úr Fjölni varð í þriðja sæti.

Irka varð einnig meistari í tvíliðaleik í meistaraflokki ásamt Sigríði Sigurðardóttur úr Þrótti en í tvíliðaleik karla sigruðu Valdimar Eggertsson frá HMR og Raj K. Bonifacius úr Víkingi.

Víkingur sigraði í liðakeppni mótsins, bæði í meistaraflokki karla og kvenna. Í karlaliðinu voru Egill Sigurðsson, Aleksandar Stojanovic, Árni Björn Kristjánsson og Raj K. Bonifacius. Í kvennaliðinu voru þær Emilía Eyva Thygesen, Garima Nitinkumar Kalugade og Kristín Hannesdóttir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert