Sundkappinn Anton Sveinn McKee synti rétt í þessu til úrslita í 200m bringusundi á Opna spænska meistaramótinu í sundi sem fram fer í Barcelona.
Anton synti á tímanum 2:13.05 og tryggði sér silfurverðlaun í sundinu. Besti tími Antons er 2:08.74, sem hann synti á HM í 50 metra laug í Búdapest í júní síðastliðnum, þar sem hann hafnaði í sjötta sæti.
Anton er búinn að vera í þungum æfingum síðan á HM50 og var þetta mót liður í undirbúningi hans fyrir Evrópumótið í 50 metra laug sem hefst í Róm eftir þrjár vikur.