Annie Mist á verðlaunapall

Annie Mist um helgina.
Annie Mist um helgina. Skjáskot/Instagram Rogue Invitational

Annie Mist Þórisdóttir hafnaði í öðru sæti á Rogue Invitational í Crossfit sem lauk í Texas í Bandaríkjunum í gær. Þetta er annað árið í röð sem Annie hreppir annað sætið á mótinu.

Annie fékk 705 stig í keppninni og var 36 stigum á undan næstu konum en 55 stigum á eftir Lauru Horvath frá Ungverjalandi sem bar sigur úr býtum.

Björgvin Karl Guðmundsson varð sjötti í karlaflokki með 620 stig, 115 stigum á eftir sigurvegaranum, Justin Medeiros frá Bandaríkjunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert