Íslendingur Norðurlandameistari í fjórsundi

Birnir Freyr Hálfdánarson, Norðurlandameistari í 200 metra fjórsundi.
Birnir Freyr Hálfdánarson, Norðurlandameistari í 200 metra fjórsundi. Ljósmynd/SSÍ

Birnir Freyr Hálfdánarson gerði sér lítið fyrir og kom fyrstur í mark í 200 metra fjórsundi unglinga á Norðurlandamótinu í sundi sem fram fer í Bergen í Noregi. 

Birnir Freyr synti á tímanum 2:00.15 og bætti fyrrum tímann sinn um tæpar tvær sekúndur. Þessi tími er jafnframt nýtt unglingamet, en gamla metið átti Kristinn Þórarinsson, 2:00.70, sem hann setti árið 2013. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert