Bikarmóti á Ísafirði frestað

Íslenska landsliðið á HM á Ítalíu í alpagreinum árið 2021.
Íslenska landsliðið á HM á Ítalíu í alpagreinum árið 2021. Ljósmynd/SKÍ

Bikarmóti í alpagreinum, sem áætlað var að færi fram 18. og 19. febrúar næstkomandi á Ísafirði, hefur verið frestað.

Skíðasamband Íslands greinir frá því að ástæðan fyrir frestuninni séu mikil hlýindi og hláka undanfarna daga á Ísafirði.

„Þótt eitthvað frost sé í kortunum, er sama og engin úrkoma sem fylgir og því verða keppnisbakkar ekki nægilega nógu þykkir fyrir keppni,“ sagði í tilkynningu Skíðasambandsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert