Hamar á toppnum eftir hörkuleik

Hamarsmenn sækja og Vestramenn eru í hávörn í leiknum í …
Hamarsmenn sækja og Vestramenn eru í hávörn í leiknum í gærkvöld. Ljósmynd/Kristín

Hamar jók forskot sitt á toppi úrvalsdeildar karla í blaki eftir sigur á Vestra, 3:1, í Hveragerði í gærkvöld.

Hamar er nú með 31 stig, Afturelding er með 23, KA 22, Vestri 17, HK 14, Þróttur Fjarðabyggð 14 og Stál-úlfur er með 2 stig á botninum.

Hamar og Vestri eru komin í undanúrslit Kjörísbikarsins sem fram fer um næstu helgi og leikurinn því fínasta upphitun fyrir bæði lið fyrir átök komandi föstudags.

Leikurinn reyndist þó allt annað en upphitun þar sem bæði lið þurftu að hafa fyrir hverju einasta stigi í leiknum.

Fyrsta hrinan var jöfn framan þar sem liðin virtust vera í uppgjafakeppni. Hamar hafði þó að lokum sigur 25:19. Vestri jafnaði svo leikinn með því að vinna aðra hrinu 25:21 en Hamarsmenn tóku svo aftur forystunak 2:1, með því að vinna þriðju hrinu 25:19. Heimamenn unnu lokahrinuna 25:21 og leikinn þar með 3:1 og sitja sem fyrr á toppi deildarinnar.

Undanúrslit og úrslit Kjörísbikarsins fara fram um næstu helgi. Á fimmtudaginn í undanúrslitum mætast Hamar og Afturelding annars vegar og Vestri og KA hins vegar. Úrslitin fara svo fram á laugardag.

Stigahæstur í liði Hamars var Marcin Graza með 21 stig en í liði Vestra var Franco Nicolas Molina stigahæstur með 17 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert