Sundkonan Snæfríður Sól Jórunnardóttir jafnaði Íslandsmet sitt í 100 metra skriðsundi frá því í morgun í úrslitum á Danish Open sundkeppninni. Hún synti á tímanum 55,18 sekúndur sem er sá nákvæmlega sami og í morgun.
Í morgun synti Snæfríður Sól á 55,18 sekúndum en fyrra met hennar, sem var tæplega mánaðar gamalt, var 55,61 sekúnda. Svo seinna í dag jafnaði sundkonan met sitt.
Snæfríður Sól synti einnig 50m flugsund í gær á tímanum 27,06 og tryggði sér HM50 lágmark í þeirri grein, Snæfríður er því komin með tvö HM50 lágmörk fyrir HM sem fer fram í Fukuoka í Japan í júlí.