Svissneskur og norskur sigur í Fossavatnsgöngunni

Elisabeth Schicho, Nadja Kaelin og Andrea Kolbeinsdóttir á verðlaunapalli í …
Elisabeth Schicho, Nadja Kaelin og Andrea Kolbeinsdóttir á verðlaunapalli í dag. Ljósmynd/Aðsend

Fossavatnsgangan, stærsta skíðagöngumót landsins, fór fram á Ísafirði í dag. Það voru þau Nadja Kaelin frá Sviss og Mathias Aas Rolid frá Noregi sem komu fyrst í mark í kvenna- og karlaflokki í 50 kílómetra göngunni.

Efstu Íslendingarnir í göngunni voru þau Andrea Kolbeinsdóttir og Snorri Eyþór Einarsson.

„Keppnin gekk einstaklega vel í ár, í rauninni betur en við þorðum að vona, enda hefur snjóleysi aðeins verið að hrjá okkur.

Mér hefur sýnst svo til hver einasti þátttakandi koma brosandi í mark, enda lék veðrið við okkur, nánast logn, dálítil þoka í efstu hlutum brautarinnar en engin úrkoma,“ sagði Kristbjörn Róbert Sigurjónsson, starfsmaður göngunnar, í tilkynningu.

Alls voru 300 keppendur mættir á ráslínuna fyrir 50 kílómetra gönguna klukkan átta í morgun en þar að auki voru 92 keppendur í 25 kílómetra göngunni og 37 í 12,5 kílómetra göngunni.

Vegna leysinga undanfarnar vikur þurftu skipuleggjendur göngunnar og starfsfólk skíðasvæðisins á Ísafirði að vera lausnamiðaðir í lagningu brautanna, og raunar voru brautirnar allar styttri en venjulega; 50 km brautin var um 46 km, 25 km brautin var um 24 km og 12,5 km brautin var um 9 km.

Þrátt fyrir skort á nýjum snjó voru aðstæður í brautunum nokkuð góðar, með hröðu rennsli í efstu brekkunum.

Úrslit:

50 km

Kvennaflokkur

  1. Nadja Kaelin CHE - 02:26:15.3
  2. Elisabeth Schicho DEU - 02:34:29.2
  3. Andrea Kolbeinsdóttir ISL - 02:42:12.6    

Karlaflokkur

  1. Mathias Aas Rolid NOR - 02:04:01.5
  2. Petter Soleng Skinstad NOR - 02:06:41.6
  3. Ilya Chernousov CHE - 02:07:47.4

25 km

Kvennaflokkur

  1. Árný Helga Birkisdóttir ISL - 01:41:53
  2. Sigríður Gísladóttir ISL - 01:54:05
  3. Nina Simonsen Veggum NOR - 01:58:11

Karlaflokkur

  1. Grétar Smári Samúelsson ISL - 01:16:26
  2. Hjalti Böðvarsson ISL - 01:27:38
  3. Sigurjón Hallgrímsson ISL - 01:33:13

12,5 km

Kvennaflokkur

  1. Dagný Emma Kristinsdóttir ISL - 00:32:49
  2. María Sif Hlynsdóttir ISL - 00:40:07
  3. Sölvey Marie Tómasdóttir ISL - 00:44:38

Karlaflokkur

  1. Birkir Kári Gíslason ISL - 00:36:04
  2. Heimir Logi Samúelsson ISL - 00:38:31
  3. Þorkell Máni Erlingsson ISL - 00:38:49
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert