Íslandsmótið í Judo fór fram í Laugardalshöll í dag. Árni Pétur Lund og Helena Bjarnadóttir urðu tvöfaldir Íslandsmeistarar, en þau sigruðu opinn flokk karla og kvenna auk síns þyngdarflokks, -90kg hjá Árna og -70kg hjá Helenu.
Alexander Eiríksson úr JG sigraði -60kg karla. Þetta var fyrsti Íslandsmeistaratitill Alexanders í karla flokki og jafnframt fyrsti Íslandsmeistaratitill Judofélags Garðabæjar.
Ingólfur Rögnvaldsson varð Íslandsmeistari í -66kg. Var þetta þriðji Íslandsmeistaratitill Ingólfs í röð í -66kg flokknum.
Aðalsteinn Björnsson og Kjartan Hreiðarsson, báðir úr JR mættust í úrslitum -73kg flokksins. Aðalsteinn sigraði í gullskori eftir jafna viðureign og tryggði sér þar með sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í fullorðinsflokki.
Aðrir sigurvegarar:
Breki Bernharðsson (UMFS) varð Íslandsmeistari í -81kg flokki karla.
Egill Blöndal (UMFS) varð Íslandsmeistari í -100kg flokki karla.
Karl Stefánsson (JDÁ) varð Íslansmeistari í +100kg flokki karla.