Erna bætti eigið Íslandsmet

Erna Sóley Gunnarsdóttir heldur áfram að bæta metin sín og …
Erna Sóley Gunnarsdóttir heldur áfram að bæta metin sín og í kvöld bætti hún Íslandsmetið utanhús um 10 sentimetra. mbl.is/Hákon

Erna Sóley Gunnarsdóttir bætti í nótt eigið Íslandsmet um tíu sentímetra í kúluvarpi utanhúss á heimamóti sínu, J. Fred Duckett Twilight mótinu, í Houston, Texas.

Erna sigraði í keppninni með yfirburðum og kastaði lengst 17,39 metra en fyrra metið hennar setti hún í mars á síðasta ári.

Hún á þó best 17,92 metra innanhúss frá því í vetur. Erna á nú tólfta lengsta kast í kúluvarpi kvenna utanhúss í NCAA (bandarískum háskólum) í ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert