Daníel og Arna tvöfaldir Íslandsmeistarar

Daníel Jóhannesson og Arna Karen Jóhannsdóttir eru tvöfaldir Íslandsmeistarar.
Daníel Jóhannesson og Arna Karen Jóhannsdóttir eru tvöfaldir Íslandsmeistarar. Ljósmynd/Badmintonsamband Íslands

Gerda Voitechovskaja vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í einliðaleik í badminton er hún bar sigur úr býtum gegn Sigríði Árnadóttur í hörkuspennandi úrslitaleik, en leiknum lauk með sigri Gerdu í þremur lotum 21:19, 22:24 og 21:15. 

Daníel Jóhannesson varði titil sinn frá því í fyrra og þann þriðja í röð gegn Kára Gunnarssyni sem unnið hefur titilinn níu sinnum, en leikurinn fór 21:13 og 21:14. 

Í tvíliðaleik kvenna sigruðu Sigríður Árnadóttir og Arna Karen Jóhannsdóttir þær Sólrúnu Önnu Ingvarsdóttur og Unu Hrund Örvar 21:4 og 21:12. 

Í tvíliðaleik karla sigruðu Davíð Bjarni Björnsson og Kristófer Darri Finnsson þá Bjarka Stefánsson og Daníel Thomsen 21:7 og 21:11.

Síðasti leikur dagsins var tvenndarleikur en þar öttu kappi Davíð Bjarni Björnsson og Arna Karen Jóhannsdóttir annars vegar og Daníel Jóhannesson og Sigríður Árnadóttir hins vegar og fór svo að Davíð Bjarni og Arna Karen höfðu betur í tveimur lotum 21:11 og 21:17.  Eru Davíð Bjarni og Arna Karen því tvöfaldir Íslandsmeistarar í badminton 2023.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert