KA er komið yfir gegn Hamri, 2:1, í úrslitum Íslandsmóts karla í blaki með 3:1-sigri í Hveragerði í dag.
Hamar vann fyrsta leikinn 3:1 í Hvergerði en KA jafnaði metin í öðrum leik liðanna með 3:2-sigri en þrjá sigra þarf til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn.
KA vann fyrstu hrinuna nokkuð örugglega, 25:18, en Hamarsmenn jöfnuðu metin í annarri hrinu með 25:23-sigri. KA-menn unnu svo þriðju og fjórðu hrinu með þremur stigum, 25:22 og tryggðu sér gífurlega sterkan sigur.
Lang stigahæstur í liði KA var sem fyrr Miguel Mateo með 29 stig en í liði Hamars var það Marcin Graza með 18 stig.
Fjórði leikur liðanna fer fram á Akureyri á þriðjudaginn kemur og geta KA menn þá tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á heimavelli.