Afturelding þarf einn sigur í viðbót

Mosfellingar klárir á Akureyri í kvöld.
Mosfellingar klárir á Akureyri í kvöld. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Afturelding er einum sigri frá því að verða Íslandsmeistari kvenna í blaki eftir 3:2-útisigur á KA í þriðja leik í úrslitaeinvígi liðanna á Akureyri í kvöld.

Afturelding vann fyrstu hrinuna 25:20, en KA svaraði með 28:26 og 25:18-sigrum í annarri og þriðju hrinu.

Afturelding vann fjórðu hrinu 25:23 og réðust úrslitin því í oddahrinu. Þar hafði Afturelding loks betur eftir upphækkun, 16:14.

Liðin mætast í íþróttahúsinu að Varmá í fjórða leik á miðvikudaginn kemur og getur Afturelding þá tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn, á meðan KA freistar þess að ná í oddaleik.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert