„Mér líður stórfenglega“

Sóley hlaðin medalíum eftir góðan dag á EM. Hún hefur …
Sóley hlaðin medalíum eftir góðan dag á EM. Hún hefur verið óstöðvandi upp á síðkastið. Ljósmynd/Lára Bogey Finnbogadóttir

„Mér líður stórfenglega. Maður er enn að koma sér niður á jörðina eftir þetta,“ segir Sóley Margrét Jónsdóttir kraftlyftingakona sem í dag varð Evrópumeistari í +84 kg flokki á Evrópumeistaramótinu í kraftlyftingum í Thisted í Danmörku.

„Sigur á EM í opnum flokki er eitthvað sem ég hef stefnt á lengi og eftir lokaréttstöðulyftuna var erfitt að átta sig á að þessu markmiði var virkilega náð. Ég er eðlilega þreytt eftir öll þessi átök en virkilega hamingjusöm engu að síður og þakklát fyrir teymið sem var mér til aðstoðar í dag,“ heldur hún áfram.

Sigraði Sóley keppinauta sína í flokknum með yfirburðum, þær Valentynu Zahoruiko frá Úkraínu og Amalie Larsson frá Danmörku. Lyfti Sóley 660 kg í samanlögðu en Zahoruiko 622,5 kg og Larsson 577,5 kg.

Réttstöðulyftan létt

„Hnébeygjan gekk vonum framar. Ég opnaði í léttri og öruggri þyngd fyrir mig, 245 kíló, sem fóru auðveldlega upp. Svo var þyngt í 260 kíló og á eftir því 270 kíló. Sama má segja um þær lyftur að þær voru öruggar og léttar,“ segir Sóley af fyrstu lyftunum.

Hún hóf svo leika með 170 kg í bekkpressu og fékk hana gilda ásamt næstu þyngd sem var 182,5 kg. „Ég reyndi við 192,5 kíló í þeirri þriðju og seinustu sem fóru léttilega upp en fékk hana því miður ógilda þar sem rassinn lyftist af bekknum sem má ekki samkvæmt reglugerðum,“ segir Evrópumeistarinn nýbakaði enn fremur frá.

Á EM í Danmörku. Frá vinstri: Þorsteinn Ægir aðstoðarþjálfari, Auðunn …
Á EM í Danmörku. Frá vinstri: Þorsteinn Ægir aðstoðarþjálfari, Auðunn Jónsson, yfirþjálfari og íþróttastjóri Kraftlyftingasambands Íslands, Alex Orrason keppandi, Evrópumeistarinn Sóley og Lára Bogey, aðstoðarþjálfari og framkvæmdastjóri Kraftlyftingasambands Íslands. Ljósmynd/Kraftlyftingasamband Íslands

„Í réttstöðulyftunni náði ég öllum lyftum létt og auðveldlega upp, 180, 200 og 207,5 kílóum. Það sem kom mér mest á óvart var hversu mikil orka var í réttstöðulyftunni þar sem ég ákvað í samráði við þjálfara að æfa hana ekkert frá HM í nóvember þar sem hún hefur verið mikill verkjavaldur í uppkeyrslunni,“ segir Sóley frá en bakmeiðsli voru að hrjá hana í vetur eins og hún greindi frá í viðtali eftir ÍM í bekkpressu fyrir hálfum mánuði.

Hvernig var að keppa á EM svona skömmu eftir ÍM í bekk?

„ÍM í bekk var bara tekin sem æfing fyrir mótið í dag svo uppbyggingarplanið fyrir EM breyttist ekkert vegna þess móts,“ svarar Sóley sem nú setur stefnuna ótrauð á heimsmeistaramótið í Vilníus í Litáen í nóvember.

Sóley hlýðir á þjóðsönginn eftir sigurinn, vinstra megin á myndinni …
Sóley hlýðir á þjóðsönginn eftir sigurinn, vinstra megin á myndinni er Valentyna Za­huriu­ko frá Úkraínu en hægra megin við Sóleyju er Amalie Lars­son frá Dan­mörku. Ljósmynd/Lára Bogey Finnbogadóttir

„Einnig verða Vestur-Evrópuleikarnir haldnir á Íslandi í ágúst og ég ætla að hafa það bak við eyrað hvort ég taki það til að hita aðeins upp fyrir HM. Það væri alla vega gaman að fá að keppa á stórmóti í heimalandinu,“ segir Sóley Margrét Jónsdóttir Evrópumeistari að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert