Sindratorfæran fór fram á laugardaginn og voru 23 keppendur skráðir til leiks.
Framan af leiddi íslandsmeistarinn Haukur Viðar Einarsson á Heklu, en eftir að bilanir fóru að segja til sín þá komst Skúli Kristjánsson á Simba fljótt upp í fyrsta sætið og hélt því út keppnina og endaði sem sigurvegari.
Geir Evert Grímsson á Sleggjunni kom rétt á eftir Skúla og gat í síðustu braut skotið sér að toppinn, en eftir að hafa ekið yfir tvær stikur í mýrinni og fengið 60 refsistig sigraði Skúli með 51 stigi.
Í 3. sæti, 8 stigum á eftir Geir, kom Ingvar Jóhannesson á Víkingnum en hann keyrði öruggt í gegnum allar brautir sem skilaði honum frábærum árangri. Snorri Þór Árnason á Kórdrengnum náði 4. sæti en hann var að klifra upp stigatöfluna alla keppnina eftir mistök í fyrstu braut þar sem hann fékk fá stig miðað við keppninautana.