Valgerður Guðsteinsdóttir, atvinnukona í hnefaleikum, fagnaði sigri á Mariami Nutusubidze frá Georgíu í léttvigt á hnefaleikakvöldi í Alingsås í Svíþjóð í gær.
Bardaginn átti að vera sex lotur í léttvigt, en Valgerður vann með rothöggi þegar 40 sekúndur voru eftir af fyrstu lotu. Þá var andstæðingur hennar 1,5 kílóum of þung fyrir léttvigtina, en Valgerður náði auðveldlega vigt.
Valgerður hefur nú barist tíu sinnum sem atvinnumaður, unnið sex bardaga og tapað fjórum. Tveir sigrarnir hafa komið með rothöggum. Var sigurinn í gær sá fyrsti síðan 27. nóvember árið 2021, eftir tvö töp í röð.
„Bardaginn bauðst með tveggja vikna fyrirvara og ég er innilega þakklát þeim styrktaraðilum sem gerðu þetta mögulegt,“ skrifaði Valgerður í yfirlýsingu eftir bardagann.