Þorri Jensson fagnaði sigri á Íslandsmeistaramótinu í snóker sem fram fór á Billiardbarnum í Faxafeni í Reykjavík um helgina.
Þorri, sem átti titil að verja, hafði betur gegn Jóhannesi Birgi Jóhannessyni, sexföldum Íslandsmeistara, í úrslitaeinvíginu.
Jóhannes hóf leikinn betur og vann fyrstu tvo rammana. Þorri komst þá á skrið og jafnaði leikinn í 2:2. Næst skiptust þeir á að vinna ramma allt þar til staðan var 6:6.
Þorri vann næstu tvo leikina og komst því hársbreidd frá titlinum. Jóhannes sýndi þá gamla takta og vann 15. rammann með góðu stuði upp á 47 stig.
Þorri innsiglaði titilvörnina í lokarammanum með glæsilegu stuði upp á 98 stig og hampaði þar með sínum þriðja Íslandsmeistaratitli.