Katrín Pálsdóttir gerði sér lítið fyrir og stóð uppi sem sigurvegari á heimsmeistaramótinu í öðrum tegundum þríþrauta í öllum aldursflokkum. Mótið fór fram á Ibiza á Spáni um liðna helgi.
Á mótinu var keppt i tveimur óhefðbundnum vegalengdum í þríþraut auk fjallahjólaþríþrautar. Einnig var keppt í nokkrum greinum tvíþrauta. Í greininni fór fram „long distance Aquabike“ í öllum aldursflokkum þar sem fyrst voru syntir þrír kílómetrar í sjó og svo hjólaðir 116 kílómetrar.
Katrín var fulltrúi Íslands á mótinu og vann alla aldursflokka í greininni.
Hún synti á tímanum 49 mínútum og 45 sekúndum og hjólaði á tímanum 3 klukkustundum, 23 mínútum og 41 sekúndu.
Heildartími hennar með skiptingu var 4 klukkustundir, 18 mínútur og 31 sekúnda og var hún 45 sekúndum á undan næstu konu, Amber Smolik frá Bandaríkjunum.
Árangurinn er hreint magnaður hjá Katrínu og er þetta í fyrsta skipti sem Ísland eignast heimsmeistara í öllum aldursflokkum í þríþraut.