KA er Íslandsmeistari

KA-menn með bikarana á lofti eftir sigurinn í kvöld.
KA-menn með bikarana á lofti eftir sigurinn í kvöld. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

KA tryggði sér í kvöld Íslandsmeistaratitil karla í blaki í sjöunda skipti með því að sigra Hamar, 3:1, í fjórða úrslitaleik liðanna í KA-heimilinu á Akureyri.

Staðan var 2:1 eftir að KA sneri einvíginu sér í hag með sigri í þriðja leiknum í Hveragerði. Hamarsmenn sjá því á bak Íslandsmeistaratitlinum eftir að hafa unnið hann tvö undanfarin ár en silfrið í ár er lakasti árangur þeirra eftir að þeir stofnuðu liðið fyrir tímabilið 2020-21.

Íslandsmeistararnir 2023, KA-menn.
Íslandsmeistararnir 2023, KA-menn. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir


KA vann fyrstu hrinuna 25:20 á 24 mínútum og lék sama leik í annarri hrinu sem tók 28 mínútur. Staðan var því orðin 2:0 og ein hrina enn í Íslandsmeistaratitilinn.

Hamarsmenn gáfu sig ekki og unnu sannfærandi sigur í þriðju hrinu, 25:16, á 21 mínútu, og staðan var því 2:1.

Fjórða hrinan var hnífjöfn lengi vel en upp úr henni miðri náði KA undirtökunum og komst í 18:12. Hamarsmenn voru hvergi nærri hættir og minnkuðu muninn í 19:17 og síðan í 21:20 og 22:21.

KA-menn áttu hins vegar meira inni, skoruðu þrjú síðustu stigin, unnu hrinuna 25:21 og þar með var Íslandsmeistaratitillinn þeirra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert