Sara Sigmunds: Leið eins og krakka á jólunum

Sara Sigmundsdóttir.
Sara Sigmundsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Crossfitkonan Sara Sigmundsdóttir hefur skrifað undir samning við ástralska íþróttavöruframleiðandann LSKD.

Í síðasta mánuði hætti hún óvænt samstarfi sínu við íþróttavöruframleiðandann WIT-Fitness, sem sendi frá sér átta fatalínur í hennar nafni á meðan þriggja ára samstarfi þeirra stóð.

Í sameiginlegri tilkynningu Söru og LSKD á Instagram segir að hún stefni ótrauð aftur á toppinn í Crossfit og að þau muni í sameiningu vinna hörðum höndum að því að Sara nái því markmiði.

„Þegar ég frétti af því að LSKD hafi spurt umboðsmann minn um mig leið mér eins og krakka daginn fyrir jól. Ég er svo hamingjusöm.

Ég er að ganga til liðs við magnað vörumerki. Einstakt vörumerki sem er þegar orðið farsælt. Öll stemningin í kringum það passar svo vel við mig,“ sagði Sara í samtali við Crossfit-miðilinn Morning Chalk Up.

View this post on Instagram

A post shared by LSKD (@lskd)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert