Sigríður Elín Guðlaugsdóttir var í dag kjörin formaður Fram, fyrst kvenna í 115 ára sögu félagsins.
Auður Geirsdóttir, Guðríður Guðjónsdóttir, Hallgrímur Friðgeirsson, Knútur Hauksson, Kristinn Steinn Traustason, Sverrir Benonýsson og Þorbjörg Gunnarsdóttir tóku einnig sæti í aðalstjórn Fram í dag.
Sigurður Ingi Tómasson, fráfarandi formaður, var heiðraður fyrir sín störf fyrir félagið, en hann gegndi formannsstarfinu frá árinu 2016. Albert Jónsson, Sigurður Baldursson og Þórir Jóhansson gengu einnig úr stjórn.