Úrslitaeinvígi Aftureldingar og KA á Íslandsmóti kvenna í blaki ræðst í oddaleik. Það varð ljóst eftir 3:2-útisigur KA í fjórða leik liðanna í Mosfellsbæ í kvöld.
Afturelding hefði orðið meistari í kvöld með sigri og heimakonur byrjuðu betur og unnu fyrstu hrinu 25:18. KA svaraði með 25:21-sigri í annarri hrinu, 1:1.
Afturelding komst aftur yfir með 25:12-sigri í þriðju hrinu, en aftur jafnaði KA, nú með 25:19-sigri í fjórðu hrinu. KA vann síðan jafna oddahrinu, 15:13.
Oddaleikurinn fer fram á föstudaginn kemur í KA-heimilinu.