Hnefaleikamaðurinn Kenneth Egano er látinn, aðeins 22 ára að aldri. Hann hneig niður í hringnum eftir bardaga sinn við Jason Facularin í síðustu viku.
Egano vann bardagann, en hneig niður strax að bardaga loknum, áður en úrslitin voru gerð opinber. Hann lá þungt haldinn á sjúkrahúsi í viku, áður en hann var úrskurðaður látinn í dag.
Filippseyingurinn hlaut alvarlegan heilaskaða, eftir þungt högg frá Facularin, og missti meðvitund strax í kjölfar bardagans. Hann var fluttur á sjúkrahús, en komst aldrei aftur til meðvitundar.
Bardaginn var hluti af bardagakvöldi sem áttfaldi heimsmeistarinn Manny Pacquaio stóð fyrir. Pacquaio greiddi reikning Eganos fyrir dvölina á sjúkrahúsinu, ásamt því að greiða flug fyrir foreldra Eganos til að heimsækja hann á spítalann.